Þokkadísin Ég heiti Þórdís Nadia og þetta er bloggsíðan mín. Ég er 20 ára Reykjavíkurmær og stunda ég nám við FB. Ég er mjög áhugaverð manneskja, mjög mikilvæg og bara frábær. Ég er æði... 10 nýjustu færslurnar
Bloggarar Anna StellaEinar Elva Litla Geimveira Heba, Erla og Margó Katla Þórunn Myndir Eldra 03/09/2003 - 03/16/2003 |
fimmtudagur, júní 12, 2003 Bonjour de Paris! Jaeja nuna er eg stodd i Paris, eftir mikid pul og vesen fundum vid hotelid okkar i gaer. Vid logdum okkur thegar vid komum a hotelid og eftir thad aetludum vid ut ad fa okkur ad borda en endudum sidan a einhverjum pobb med risakonnu af bjor. I dag for eg i Eiffel-turninn, thad var fint fyrir utan thad ad thad var svo skyjad og byrjadi ad rigna. Nuna er eg buin ad hitta systir mina og Yann, vid holdum svo aleidis til Remoulin a sunnudaginn...held eg. En annars verd eg ad segja ad Paris er mjog falleg borg sem hefur upp a margt ad bjoda og tho svo ad eg hafi heyrt sogur um ad thad se donalegt folk i Paris, tha er thad nu bara ekkert donalegt midad vid Madrid bua. Flest folkid herna kann ensku og eg hofum vid verid mjog heppin med hjalp fra okunnugum. En annars er thetta stor borg og kannski einum of stor fyrir mig, thad getur verid svolitid othaegilegt. Bon, je vais Je vous embrasse! Nadia
þriðjudagur, júní 10, 2003 Á morgun segir sá lati, á morgun segir stúlkan í Blikahólum sem er að fara til Parísar! Kæru vinir á morgun held ég út til Parísar, en þerrið tár ykkar því að ég mun koma aftur í haust. Ég sé eiginlega hálfveginn eftir því að hafa bloggað svona mikið um brottför mína því núna hef ég ekkert til þess að skrifa um. Ég get kannski skrifað um bíóferð mína í gær. Skellti mér á Identity og þó svo að ég hafi vitað hver morðinginn væri þá lét ég mig samt hafa það að fara á myndina. Mér fannst myndin mjög góð og mjög spennandi þrátt fyrir ég vissi hver morðinginn væri. Þar hafið þið það, það var gaman hjá mér í bíó í gær! Ég ætla að halda kveðjupartý á msn í kvöld á slaginu 01:00 og þið sem viljið kveðja mig en eru ekki með mig inn á contactlistanum bætið mér þá bara inn á e-mail adressan er thnadia151@hotmail.com. En ég mun sennilega halda áfram að blogga á internet kaffihúsum í kringum Evrópu. Ciao Þórdís Nadia
mánudagur, júní 09, 2003 Aðeins 2 dagar í brottför
Já ég segi satt ég trúi þessu varla lengur aðeins 2 dagar í brottför, ekki finnst mér það vera langt síðan að það voru AÐEINS 6 mánuðir í brottför. Þetta er allt búið að vera svo fljótt að líða, sérstaklega þá þessi vorönn hún var einstaklega fljót að líða og ekki skil ég afhverju. Vanalega finnst mér sem að vorönnin sé heila eilíf að líða. Ég er búin að vera dunda mér við það að pakka, og í fyrsta skipti á ævinni hefur mér fundist það vera mjög auðvelt. Vanalega hef ég setið við ferðatöskuna með tárin í augunum, öskrandi á mömmu og verið að deyja úr stressi því að ég hafi ekki komið neinu fyrir. En núna benti mamma mér á sniðuga ferðatösku í Hagkaup(um) sem kostaði aðeins 6000 kr. og bara mjög hentug og þægileg, svona stór flugfreyjutaska og mjög djúp þannig að það kemst líka mikið fyrir. Ég vil koma einu á framfæri hérna fyrir fólkið sem ætlar e-ð út í sumar (þá meina ég sérstaklega stelpurnar), og gefa þeim smá tips varðandi pakkningarnar. 1. Ekki einu sinni detta það til hugar að taka með ykkur einhver skópör sem að þið "haldið" að þið munið nota en vitið svo innst inni að þið munið ekki gera það. Hafið í huga að það er 20 kg. hámark í check-in. 2. Ef þið hafið áhyggjur af skyrtum eða kjólum sem muna krumpast, þá mæli ég eindregið með því að þið rúllið þeim saman. Þannig taka fötin minna pláss og krumpast ekki eins mikið. 3. Ég gerði þau mistök í fyrra að taka með mér risastórt handklæði sem tók nærri því allt plássið í töskunni minni, en endaði síðan með því að skilja það eftir úti því það var orðið svo ógeðslegt eftir ströndina. Hafið í huga að það er alltaf hægt að kaupa ódýr handklæði úti í útlöndum, þá sérstaklega á Spáni og Portúgal. 4. Núna get ég ekki talað af reynslu en ég hef vissulega þá kenningu ef að maður kaupir sér tösku sem er með lás og öllum græjum að þá séu meiri líkur að henni verði stolið. Það er að segja að þá lítur út sem að það sé e-ð merkilegt í töskunni sem má alls ekki vera stolið! 5. Hafið í huga þegar þið eruð að pakka um að pakka öllu því nauðsynlegasta og ekki gleyma því að þið komið örugglega með helmingi meira drasl heim heldur en þið fóruð með út. Ég er farin að pakka! Ciao Þórdís Nadia
|