Þokkadísin Ég heiti Þórdís Nadia og þetta er bloggsíðan mín. Ég er 20 ára Reykjavíkurmær og stunda ég nám við FB. Ég er mjög áhugaverð manneskja, mjög mikilvæg og bara frábær. Ég er æði... 10 nýjustu færslurnar
Bloggarar Anna StellaEinar Elva Litla Geimveira Heba, Erla og Margó Katla Þórunn Myndir Eldra 03/09/2003 - 03/16/2003 |
laugardagur, október 11, 2003 Brjáluð Morðkvendi
Fór áðan á rúntinn með Sússí. Djöfull var gaman, þetta var örugglega skemmtilegasti föstudagsrúntur sem ég hef farið á. Við byrjuðum á því að keyra niður Suðurlandsbrautina, þar sáum við einhvern kauða vera að húkka far. Við keyrðum framhjá honum en ákváðum svo að snúa við, því ég var með piparspery í töskunni þannig að við vorum ekki gjörsamlega óvopnaðar (þar að segja ef þetta skildi vera einhver öfuguggi). Við tókum hann upp í, hann sagðist heita Gummi og hafi verið að koma úr vísindaferð sem hann fór í með Háskólanum. Hann var rosalega þakklátur, og taldi okkur vera ótrúlega almennilegar að taka hann upp í. Hann var kannski einum of þakklátur þegar hann fór að tala um hversu góður nuddari hann væri og ætlaði að taka mig í smá sýnikennslu, en ég afþakkaði það kurteisislega. Við hentum honum út hjá Þjóðleikhúsinu og héldum svo áfram með rúntinn okkar. Súsanna hafði fundið einhver brjáluð sólgleraugu í bílnum, og setti hún þau upp á sig. Ég stakk upp á því að hún ætti að setja sjalið sitt yfir hausinn, þá liti hún út eins og einhver brjálaður morðingi. Hún gerði það, ég hafði ekki mikið til þess að hylja mig með þannig ég lét bara að duga að setja hettuna á mig og hárið fyrir augun, ég leit í rauninni út eins og versti hippi. Svo stilltum við á Rás 2 og hlustuðum á Pink Floyd og einhverja aðra sýru-tónlist, skrúfuðum svo rúðurnar niður og keyrðum af stað. Við keyrðum niður Laugarveginn svona útlítandi og reyndum eftir bestu getu að halda andlitinu, sem tókst frekar illa, því að í hvert skipti sem einhver leit inn í bílinn sprungum við úr hlátri. Súsanna var ekkert smá fyndin með þetta sjal yfir sér og sólgleraugun, ég gat ekki annað gert en að hlæja þegar ég leit á hana. Ekki heyrðist mér betur en að einhver öskraði eftir okkur á Laugarveginum "Brennum þær á báli! Sáuð þið þær??". Þannig kannski leit þetta út fyrir að við værum nornir. Eftir heilann rúnt á Laugarveginum og eftir við hræddum nokkra viðskiptavini á AktuTaktu, ákváðum við að fara heim. Þetta var mjög gaman og ég væri til að endurtaka þetta, vera bara betur tilbúin og kannski vera með stóran eldhúshníf næst. Nadia
föstudagur, október 10, 2003 Hú da fokk is Bob??
Ég var að skoða gestabókina mína rétt í þessu og einhver Bob skráð sig inn þar, en var í leiðinni að auglýsa einhverja ömurlega casino on-line síðu. Ég efast um að hann skilji íslensku og honum finnist þessi síða vera virkilega flott. Ég er bara notuð af honum sem auglýsinga-brella...oh mér finnst ég vera svo skítug. Mamma bara á leiðinni út eina ferðina enn. Hún fer út á mánudaginn til Nantes eða e-ð ég man ekki hvernig það er skrifað, þar sem systir mín býr. En Lára er komin 9 mánuði á leið og á sennilega að eiga núna bráðlega. Ég hlakka svo til, ég vona að litli krakkinn fái krullurnar frá henni Láru og augun frá Yann, það væri flott útkoma. It´s official ég byrja að spila á selló næsta miðvikudag. Ég hlakka svo til ég er að deyja, setjast aftur undir sellóið eftir margra ára hlé, vonandi verður þetta þess virði. Já og það eru bara 2 mánuðir þangað til að Selma fer út, og mun ég sennilega ekki sjá hana í heilt ár. Æji það verður svo leiðinlegt á klakanum án Selsins, ég vona að hún fái bara ógeð á þessari Au-Pair fjölskyldu og krakkanum sem hún er að passa. Þá skýt ég bara inn í tilboði að hún geti komið aftur til Íslands og passað mig, ég myndi bara reyna að babla e-ð á þýsku, og byrjað að nota bleyjur, þannig að starf hennar væri ekki algjörlega tilgangslaust. Einn dagur eftir af þessari blessaðri skólaviku, og er það lengsti dagurinn hjá mér. En ég held að ég verði bráðum að fá koffein í æð, ég get bara ekki haldið mér vakandi í tímum. Sérstaklega ekki ensku-tímum þar sem við sitjum og lesum upphátt út allan tímann, mikið gasalega getur það verið þreytandi. Stijn belgíski skiptineminn sagði við mig um daginn "I hope you wont fall asleep again in class", þá svaraði ég algjörlega utangátta: "What do you mean, fall asleep?" þá svaraði hann: "Well I guess if someone lays their head on his palm and closes his eyes with a peaceful smile, I assume that person being asleep". Sem var reyndar alveg hárrétt hjá honum ég hélt bara að ég væri svona lúmsk að fela svefnsýki mína, en greinilega ekki. Jæja ég er farin í bað og ætla að halda áfram að lesa bókina Nadia knows best...sem er satt. Nadia
mánudagur, október 06, 2003 A quite odd weekend I must say hehemm...
Byrjaði helgina á einhverju fyllerísrugli á fimmtudeginum sem kostaði mig mikinn pening og leiðnlega þynnku. Á föstudaginn fór mest allur dagurinn í svefn eða að drekka vatn. Föstudagskvöldið kíktu ég og Súsanna til Halla Palla. Þar sátu flest allir í rólegheitunum og fengu sér bjór, voru held ég ég og Súsanna og ein önnur stelpa einu stelpurnar þarna inni. Ég varð hálf undrandi á því að heyra hversu mikið strákarnir slúðruðu um fólk, það var eiginlega bara fyndið þetta var eins og vera komin í saumaklúbb með ömmu gömlu. En einhvern veginn datt ég sjálf inn í þessa stemmningu og hló mikið að og með þeim þangað til Arnar Ingi sprautaði á mig einhverju súru spreyji og ég varð öll klístruð. Laugardagurinn hjá mér byrjaði á því að ég þurfti að mæta á starfsmannafund klukkan 11 um morguninn upp í Smárabíó. Sat ég þar í sirka 2 tíma og fékk svo pizzu. Svo hófst vinnan sem var bara geðveiki, það er ekki eðlilegt hvað þessi Spy Kids mynd er vinsæl, kannski af því að hún er í þrívídd. Frekar fyndið að sjá foreldrana koma út í hléinu ennþá með þrívíddargleraugun á sér og með nachos-sósu bletti á peysunum sínum með föstum poppkornum í. Fór síðan heim um 7 og lá upp í sófa mest allt kvöldið vegna veikinda. Sunnudagurinn var svipaður. Mánudagurinn fór í smá lærdóm á bókasafninu, ferð til Keflavíkur og svo bíóferð seinna um kvöldið á heimildarmyndina Rannsón á Huliðsheimum. Þessi mynd fjallar helst um yfirnátturuleg mál eins og álfa og huldufólk, drauga, geimverur o.fl. á Íslandi. Í fyrstu fannst mér myndin byrja vel, það var tekið viðtal við nokkra sem höfðu haft "samskipti" við álfa eða höfðu séð álfa og huldufólk. Þegar u.þ.b. hálftími var liðinn af myndinni var ennþá viðtal við fólk sem hafði "séð" álfa og huldufólk, viðtölin hljómuðu einhvern veginn svona : "Ég sá litla veru sem var á stærð við sex ára barn, og sagði mér að koma inn í steininn til sín". Ég var orðin ansi þreytt á þessari þvælu þangað til að það kom hlé. Eftir hlé var talað meira um drauga og geimverur. Það var einhver kona sem sagðist hafa talað við geimverur sem sögðu henni að passa okkur á gráu geimverunum sem vildu komast inn í pólítíkina og fjármálaheim okkar og stjórna honum. Og það væru reyndar nokkrir komnir inn í þennan heim sem við gætum ekki greint frá öðrum mannverum, og væru dulklæddir sem stjórnmálamenn. Jæja þá vitum við það að Bush og Davíð Oddsson eru grár geimverur sem vilja ráða yfir heiminum. Nadia
|