Þokkadísin Ég heiti Þórdís Nadia og þetta er bloggsíðan mín. Ég er 20 ára Reykjavíkurmær og stunda ég nám við FB. Ég er mjög áhugaverð manneskja, mjög mikilvæg og bara frábær. Ég er æði... 10 nýjustu færslurnar
Bloggarar Anna StellaEinar Elva Litla Geimveira Heba, Erla og Margó Katla Þórunn Myndir Eldra 03/09/2003 - 03/16/2003 |
fimmtudagur, desember 11, 2003 Mér líður hálfundarlega núna. Mig dreymdi ótrúlega skrítinn draum, og þvílíkt raunverulegann að ég átti erfitt með að halda aftur að mér grátinum þegar ég vaknaði.
Mig dreymdi að það hefði verið fjölskylduboð heima hjá ömmu í gömlu íbúðinni hennar í Rjúpufelli. Það voru allir að drekka, nema mér leið e-ð illa þannig ég ákvað að leggjast niður og hvíla mig. Svo vaknaði ég við það að Heba vinkona mín og Elva frænka mín voru að reyna að kaffæra mig með Maarud flögum. Ég átti erfitt með að berjast á móti (sem gerist mjög oft fyrir mig í draumum), en svo loksins stóð ég upp alveg brjáluð og greip í Hebu (sem nú breyttist allt í einu í Arndísi) um munnin og einhvern veginn náði að fleygja henni yfir á hinn helminginn á íbúðinni. Öll fjölskyldan varð stórhissa og skammaði mig fyrir að gera þetta. Ég grýtti öskubakka í ömmu mína, og alls konar drasli í alla sem urðu á vegi mínum. Í draumnum átti ég erfitt með að tala því það var eins og það væri búið að deyfa mig, þannig að allt sem ég sagði og gerði varð einhvern veginn eins og blindfull manneskja hefði gert. Ég var svo reið út í alla, mér fannst eins og þau hefðu svikið mig. Ég strunsaði síðan út og labbaði með einhverju ókunnugu fólki sem átti hunda og talaði bara um hunda. Á leiðinni hitti ég Árna Long og einhvern vin hans. Árni var kominn með axlasítt hár og sagði mér að hann og vinur hans væru á leiðinni upp í þvottahúsið upp í Hólum. Þegar ég var þarna stödd í draumnum hringdi mamma í mig og vakti mig, ég var ennþá reið út í hana þegar ég vaknaði og var lengi að átta mig á því að þetta hefði bara verið draumur. Mamma vakti mig til þess að segja mér að það væru komnar inn myndir af Eléu sem Lára hafði sent henni í e-mail. Ég skoðaði þær áðan, og hún er ekkert smá sæt! Hún er allt öðruvísi heldur en á hinum myndunum sem ég hafði séð af henni. Ég hlakka svo til að hitta hana...litlu snúllu. Ég var spurð að því í gær þegar ég var að vinna hvort að ég væri stelpan sem væri framan á Bleik og Blátt. That´s a first! Mér hefur oft verið ruglað saman við Köllu Lóu en ég skil ekki hvernig það er hægt. Við erum ekkert líkar í persónu né í útliti. Ég vona að mér verður ekki ruglað saman við hana oftar. Hef ekkert á móti henni en sumir hlutir sem hún er að gera eru fyrir neðan mína virðingu. Jæja ég er farin, farin að horfa á Dr. Phil. Ég afsaka ef þið hafið ekki skilið neitt í því sem ég var að skrifa, ég var e-ð svo illa upplögð núna. Nadia
miðvikudagur, desember 10, 2003 Ég gæti í alvöru ælt þegar ég heyri lagið með Josh Groban "You raised me up"...viðbjóðslega væmið.
Ég var að komast að þeirri niðurstöðu að ég er kommentahóra. Ég hef örugglega kommentað á yfir 9 blogg eða e-ð, og ég er ekki svo viss um að aðrir hafi gert það sama.
Ég er búin að vera svo löt núna þessa undanförnu viku, ég verið að fara að sofa klukkan 9-10 á morgnana og vaknað kannski milli 4 til 5 eftirmiðdaginn. Svo í gær hringdi ég í sellókennarinn minn klukkan 8 um morguninn (það er að segja þegar ég var ekki einu sinni búin að sofa neitt og hún hélt sennilega að ég hafi bara vaknað svona snemma) og frestaði sellótímanum um viku svo að ég þyrfti ekki að mæta klukkan 2 um eftirmiðdaginn, því að ég viss á þeim tíma væri ég sennilega sofandi. Ég er ekkert búin að æfa mig á sellóið, aðalástæðan fyrir því er sennilega að ég uppgötva oftast klukkan 10 eða 11 á kvöldin að ég sé ekkert búin að æfa mig, en þá vil ég ekkert vera að æfa mig því klukkan er svo margt....ble. Ég er búin að lifa á þessari undanförnu viku á kóki, sígarettum, þunglyndislyfjum og Snake Jump. Já og ég tel að allt af þessu sé ótrúlega ávanabindandi. Ég sem ætlaði að koma mér í gott form fyrir jólin, en ég býst við að ég muni líta út sennilega eins og útlifaður anorexíusjúklingur með ferköntuð augu. Æfingar fyrir leikritið byrja aftur á á föstudaginn, ég er alvarlega að hugsa um að hætta í þessu leikriti. Mér finnst þetta ekkert gaman, þar sem ég er svo feimin, verð ég bara hálf leiðinleg á spunaæfingum. Mér finnst þetta ekki gaman mér finnst þetta bara bókstaflega kvöl og pína. Mig langar ekkert að læra að leika, ég fór í þetta leikrit til þess að taka þátt í dansinum en það virðist ekkert vera að gera sig. En ég ætla að sjá til. Mig dreymdi í nótt að ég hafi verið að kyssa gítarleikarann í Red Hot Chilli Peppers. Hann kyssti mjög vel og ég er ekki frá því að ég sé bara pínu skotin í honum núna, ég býst að við að hann sé mín týpa þá...ekki Gísli Hvanndal. Ekki misskilja mig ég hef ekkert á móti Gísla bara ekki strákur sem ég myndi geta orðið hrifin af, annars veit ég um 2 manneskjur sem mundi sennilega gera allt til þess að vera með honum, en ég ætla ekki að nefna nein nöfn. Ég er búin að taka eftir því undanfarnar vikur að ég verð alltaf bitrari og bitrari. Ég skil í rauninni ekki afhverju, ég er í rauninni farin að hata og gefa skít í allt. Þetta er alveg ótrúlega ólíkt mér, ég var alltaf svo samviskusöm. Núna er ég farin að hata allt og nenni ekki neinu, mér líður ömurlega. Þegar mamma er að vinna og ég er ein heima þá hringir hún í mig á klukkutíma fresti, ég held að hún sé hrædd um að ég fremji sjálfsmorð eða e-ð. Hún er búin að biðja mig um að leita mér hjálpar en ég bara nenni því ekki mig langar bara að vera svona. Gera ekki neitt og vera ein heima og reykja sígarettur. Ég veit að þetta er örugglega ekki það sem fólk vill heyra þegar það les blogg annarra en ég er bara reyna að vera eins hreinskilin og ég get á þessu bloggi. Setningar vikunnar: What´s going on in your brain man?? : Sveppi á PoppTíví What´s going in in the kitchen?? : Sveppi á PoppTíví Hold the phone! : Auddi á PoppTíví Takk Fyrir Nadia
þriðjudagur, desember 09, 2003 Ég er að horfa núna á Paradis Hotel á Popp Tíví, ég er ekki frá því að Toni ein af stelpunum þarna hafi verið áður í svona svipuðum þætti sem kallaðist á The Love Boat, og voru þeir þættir sýndir á Skjá 1. Ótrúlegt að hún hafi tvisvar sinnum komist inn í einhverja svona raunveruleika þætti, kannski munum við sjá hana næst í Survivor eða e-ð.
Ég á ekkert líf, metið mitt í Snake Jump er 39836 stig...jesús.
Ég vil bara leiðrétta misskilning sem átti sér víst stað um daginn án nærveru minnar og er ég hrædd um að þessi misskilningur hafi breiðst út. Ég tek það fram hér og nú að ég er EKKI hrifin af Gísla Hvanndal....takk
mánudagur, desember 08, 2003 Þórdís Nadia lagahöfundur
Enn og aftur er ég andvaka, þetta er orðið algjört pain að vera svona andvaka á næturnar. Ég eins og þið flest öll vitið var ég að flytja, þar sem er skemmtilegast við það að flytja er það þegar maður finnur alls konar dót sem maður hefur ekki séð í langan tíma. Ég fann einmitt stóra gula stílabók þar sem ég fann frumsamin lög. Þessi bók er frá því ég var í 8. bekk, og þar sem ég er búin að opinbera sennilega flestu vandræðalega hluti sem ég hef gert eða sagt á þessu bloggi þá hef ég svo sem ekkert betra að gera en að sýna ykkur smá brot úr þessari stórkostlegu lagabók. Ég vil taka það fram að þegar ég var í 8.bekk var ég mikil tilfinningavera og eru þessi lög byggð á stórbrotnum tilfinningum og heimspekilegum hugsunum.... Ouh bap bap, Ouh bap... Don´t you wanna get, wanna get funky... Where you at you can get down on your knees and pray as you please. But over here we get down, yeah me and the whole town. Don´t you wanna get, wanna get funky Don´t you wanna get funky with me Don´t stand there and dance like a donkey Do the real thing just let me see. Where you at you can get down on your knees and pray as you please. But over here we get down, yeah me and the whole town. You can´t just walk away from the beat because the moving you have to keep En hvað þetta var stórkostlegt lag skrítið að ég hafi aldrei nýtt mér þessa hæfileika, en hér er fleira... I´m afraid of nights can´t sleep without a light. Wake up with a nightmare there´s a creature under the bed. Can´t go anywhere because I am Frightend! Frightend of the monster under the stairs. Can´t you do something because I´m not for no night affairs. Look out! Don´t shout! What´s that?! It´s just my cat! I sleep all day and stay awake all night Waiting for the crocodile to bite. What am I going to do? I´m trapped in an animal zoo. Got to get out of here before I get frightend! Frightend of the monster under the stairs Can´t you do something because I´m not for no night affairs. I see a shadow from the closet oh it´s just my father´s golfset This confusion is turning into an illusion. Vá bravo bravo...ætli ég geti gefið þetta út núna?? Nadia
sunnudagur, desember 07, 2003 Wonderland
Fór í bíó áðan með mömmu á myndina Wonderland. Myndin fjallar um klámmyndastjörnuna John Holmes og hvernig lífið hans fór í vaskinn eftir að kvikmyndaferillinn hans fór að dvína. Þetta var nú bara ágætis mynd, en kannski ekki rétta myndin til að fara með mömmu sinni á. Gerði ekki neitt um helgina, á föstudaginn vakti ég alla nóttina og fór ekki að sofa fyrir en 10 um laugardagsmorgunin, þá hringdi Elva frænka í mig og við skelltum okkur í bíó á myndina Duplex með Ben Stiller og Drew Barrymore. Þessi mynd var týpísk Meet The Parents mynd en svoleiðis myndir fara frekar illa í mig, þar sem mér finnst heldur óþægilegt að horfa á pirrandi manneskjur að eyðileggja líf annarra. En svo um laugardagskvöldið kíkti Súsanna í heimsókn til mín og við reyndum að gera aðra myndaseríu þar sem þemað var útúrdópaðar fyrirsætur, en sú myndasería tókst ekki eins vel og náði bara engann veginn að vera eins fyndin og rússnesku hóru þemað. Annars hef ég nú ekki fengið neinar rosa viðtökur við myndunum hérna á blogginu...skiptir svo sem engu þar sem mér og Súsönnu fannst þetta fyrst og fremst fyndið. Jæja nú styttis í það að ég og Sús höldum út til Frakklands og einnig styttist í það að Selurinn sé á leiðinni út til Þýskalands, en annars langar mig ekkert að tala um það...því ég á eftir að sakna hennar svo óskaplega mikið. Ég og Súsanna höfum ákveðið að gista eina nótt í Paris áður en við förum til systir minnar í Nantes, ég er farin að hlakka dálítið til.... En jæja ég er farin að æla öllu þessu ógeðslega nammi sem ég át í bíó... Nadia
|